Góðir gestir

Langanesbyggð hefur fengið þá Ingvar Sigurgeirsson og Jakob Frímann Þorsteinsson til þess að vinna með okkur að forvarnarstefnu sveitarfélagsins. Þeir kumpánar voru á Bakkafirði í gærmorgun og hittu þar nemendur og starfsfólk. Hið sama gerðu þeir hér á Þórshöfn. Í morgun hittu þeir alla nemendur í 7.- 10. bekk og ræddu við þá um kosti og galla þess að búa hér, um skólann og áhugamál þeirra. Það var afskaplega gaman að fá þá og bæði starfsfólk og nemendur glöddust yfir þessu tækifæri til þess að ræða það sem vel er gert og hvað við getum gert betur. Í gær hittu þeir nefndarmenn hinna ýmsu nefnda og í gærkveldi var íbúafundur um sama málefni þar sem sköpuðust góðar umræður. Það er ómetanlegt að fá góð gesti og veri þeir velkomnir sem oftast! Þar sem þeir nutu góðra veitinga á Bárunni urðu þeir vitni að björgun litla hrefnukálfsins og Kobbi tók þetta myndband af öllu saman: Hrefnukálfi bjargað