Fyrsti mánðurðu skólaársins hefur verið tíðindasamur

Skólasetning, fjölgreindarleikar, Fiðlan og fótstigið, Eldbarnið, Norræna skólahlaupið, Göngum í skólann, samræmd próf, bekkjarkvöld, námsefniskynningar að ógleymdum Skuggamyndunum frá Býsan eru allt hugtök og heiti sem finna má fréttir af hér á síðunni! Að auki hefur verið upplestur á bókasafninu, samspil hjá Kadri auk alls kyns námslegra viðfangsefna annrra. Og takið eftir - það er einungis 1/10 búinn af skólaárinu! Hin kröftuga skólabyrjun ber þess glöggt vitni að skólastarfið stendur í miklum blóma og við væntum mikils af þessum vetri og öllum þeim verkefnum sem skólaárið mun færa okkur!