Foreldrakaffi í GÞ á fimmtudagsmorgnum

Heil og sæl Allt frá því ég tók við skólastjórn á Þórshöfn hefur mig langað til þess að koma á foreldrakaffi einn morgun í viku og nú er komið að því!Alla fimmtudaga eru foreldrar velkomnir í morgunkaffi í Grunnskólanum frá 8:00 - 9:00. Í boði verður kaffisopinn, bækur og blöð sem tengjast skólastarfi til þess að glugga í og hver veit nema starfsmenn verði til staðar til skrafs og ráðagerða. Að minnsta kosti verð ég viðlátin á þessum tíma og að sötra mitt kaffi. Foreldrar geta fylgt krökkunum í skólann og hitt okkur í leiðinni og litið inn í kennslustundirnar um leið og þið farið heim. Við hlökkum til þess að sjá ykkur sem flest en fyrsti foreldrafimmtudagurinn verður nú á fimmtudaginn 13. nóvember. Bestu kveðjur Ingveldur