Á mánudaginn, þann 16. nóvember verður dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur hér í skólanum. Dagskráin fer fram í Þórsveri frá 17:00 til 18:30 Hátíðin í ár er tileinkuð Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi (f. 1895, d. 1964). Davíð varð snemma landsþekkt ljóðskáld og ljóðabók hans Svartar faðrir sem kom út 1919 féll í góðan jarðveg og segja má að allt frá útkomu þeirrar bókar hafi Davíð orðið eitt af þjóðskáldunum okkar. Ótal ljóð sem við kunnum, syngjum og njótum eru úr hans ranni. Nemendur munu sýna, syngja og leika efni tengt skáldinu. Í boði verða léttar veitingar.
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is