Breytingar á skóladagatali

Grunnskólinn á Þörshöfn hefur breytt skóladagatali sínu að undangengnu samþykki Fræðslunefndar, þannig: Föstudagurinn 5. desember verður tvöfaldur dagur þar sem foreldrum verður boðið í skólann klukkan 14:30 - 17:00 til þess að eiga notalega stund, skoða afurðir skapandi starfs á jólastöðvunum sem eru nú á fimmtudag og föstudag. Í boði verður kaffi, kakó með rjóma og mega nemendur koma með smákökur til að drekka seinni partinn á föstudaginn. Sannkölluð kaffihúsastemmning verður í skólanum og vonandi eigum við öll eftir að njóta samverunnar! Vegna þess að 5. des er nú orðinn tvöfaldur dagur, sem merkir að nemendur verða að mæta og vera viðstaddir allan daginn, verður ekki kennsla þann 19. des og hefst því jólafrí eftir litlu jólin og hádegisverð þann 18. desember. Við í skólanum vonumst til þess að fólk verð ánægt með þetta fyrirkomulag og njóti frísins með börnum sínum.