Börn hjálpa börnum á Þórshöfn

Í kvöld munu krakkarnir í 5. og 6. bekk ganga í hús og safna fyrir börn sem hafa það svo miklu verr en við hér á Íslandi. Þau ganga í hús með bauka og allt framlag íbúa er velþegið! Við vonumst til og vitum raunar að þið munið taka vel á móti krökkunum.