Börn hjálpa börnum

Nemendur í 5. og 6. bekk hafa nú gengið í hús hér á Þórshöfn og safnað fyrir börn í Afríku og Asíu en söfnunin fer fram á landsvísu og um 90 grunnskólar taka þátt í henni. Söfnunarféð rennur til skólastarfs þar sem sérstaklega þarf að efla það. Hér á Þórshöfn söfnuðust í bauka krakkanna 47.881 króna og er þá ótalið það sem fólk lagði inn í gegnum sinn heimabanka. Hér má sjá myndir af hressum krökkum skila af sér, og að lokinni bankaferðinni var skotist niður í fjöru og notið þeirrar veðurblíðu sem hér er.