Á hverju hausti svara nemendur okkar spurningum í Skólapúlsinum þar sem t.d. eru könnuð viðhorf til stærðfræði og ánægja af lestri. Í ár gerist það að snillingarnir sem hér eru við nám, hafa meiri ánægju af lestri en jafnaldrar þeirra á landi hér - og haldið ykkur fast: - Jafn mikinn áhuga og aðrir landsmenn á sama aldri, á stærðfræði! Þetta eru virkilega góð tíðindi og töflurnar sem hér eru með sýna svo um munar að námsáhugi nemenda okkar eykst ár frá ári! Með jákvæðu sjálfstali, með væntingum foreldra og skóla mótum við áhugasama, úrræðagóða og jákvæða einstaklinga sem munu, fyrr en varir taka við þjóðarskútunni. Það er gott til þess að hugsa! Hér má sjá okkar stærðfræðinga og áhuga þeirra miðað við aðra nemendur á landsvísu. Hér sést hvernig þróunin hefur verið á milli ára, á áhuga nemenda á stærðfræðinámi. Hér má sjá að nemendur Grunnskólans á Þórshöfn hafa meiri ánægju af lestri en aðrir nemendur á sama aldri og í skólum upp að 320 nemendum. Hér sjáum við ánægju af lestri í Grunnskólanum á Þórshöfn, hjá nemendum á sama aldri og í skólum upp að 320 nemendum. Fáir skólar á landinu státa af eins áhugasömum lestrarhestum og við!
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is