Bekkjarpésarnir birtast hverjir af öðrum

Ég veit ekkert nema hve lítið ég veit sagði Sókrates fyrir all-löngu - og vissi hann þó meira en við flest. Til þess að hægt sé að segja svona þá þarf margt að læra og sumt af því sem við lærum hér í skólanum okkar, má finna í Bekkjarpésunum okkar, en þeir eru hluti af Skólanámskrá GÞ Nú eru þeir okkar að tínast inn á netið, en þar má finna helstu áherslur vetrarins. Þá má finna hér að ofan undir Vörðum. http://thorshofn.wordpress.com/vordur/bekkjarpesar/