Árshátíðin verður þann 20. apríl

Árshátíð Grunnskólans á Þórshöfn verður haldin miðvikudaginn 20.apríl klukkan 17:00. Þá verður sýnt leikritið Skilaboðaskjóðan og tveir einþáttungar sem leiklistarval skólans setur upp. Aðgangur er ókeypis en skólablað (kr. 500) verður selt á staðnum og sjoppa verður rekin í hléí. Ágóðinn mun renna í smáleikfangakaup fyrir nemendur í útifrímínútum. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir - og lengur!