Árshátíð Grunnskólans á Þórshöfn 26. mars 2015

Árshátíð Grunnskólans á Þórshöfn verður haldin fimmtudaignn 26. mars, klukkan 17:00 í Félagsheimilinu Þórsveri. Dagurinn er tvöfaldur dagur í skólastarfinu okkar og því mætum við öll syngjandi sæl og glöð! Foreldrar, systkini, afar og ömmur, frændur og frænkur eru velkomin til okkar. Aðgangur fyrir 16. - 67. ára er krónur 1000 og rennur til nemendafélagsins. Búast má við að dagskráin og vöfflukaffið taki um 2 klukkustundir. Skóli hefst skv. stundaskrá á föstudaginn. og lýkur á hefðbundnum tíma eftir hádegið. Páskafrí hefst mánudaginn 30. mars. 7. apríl er starfsdagur í skólanum og nemendur mæta því í skólann eftir páskafrí, miðvikudaginn 8. apríl skv. stundaskrá.