Áhugi á stærðfræði eykst í GÞ

Nú eru niðurstöður nemendakönnunar Skólapúlsins komnar í hús og þar kemur í ljós að áhugi á stærðfræði er jafnt og þétt að aukast hér í skólanum. Áhugi hefur aukist um 0.6 stig síðan í haust (sem telst umtalsverð breyting) og er komin úr 4,2 upp í 4,8 en áhugi á stærðfræði á landsvísi mælist 5,5, stig samkvæmt Skólapúlsinnum! Það er ánægjulegt að sjá svo mikinn meðbyr með stærðfræði í 6. - 10. bekk, en stærðfræði er ein af kjarnagreinum grunnskólans.