Ægifagur næturhiminn

Í gær voru nemendur í 1. bekk að velta fyrir sér veðrinu því þeir stefna á að taka veðrið í upphafi dags. Á góma bárust Norðurljósin og miklar vangaveltur urðu um hvort þau væru veður. Niðurstaðan var sú að þau væru ekki veður, en þau sæjust samt bara í ákveðnu veðri - og ekki á daginn.Í gærkvöldu og í nótt léku Norðurljósin sinfóníu sem var engri annarri lík og þessu tóku nokkrir nemendur í 1. bekk eftir.  Guðjón Gam. fangaði leikinn á leyfði okkur að deila tónverkinu með sér. sauðanes Sauðanes_sáluhlið Þórshafnarkirkja Á Vísindavefnum má finna eðlisfræðilega skýringu á tilurð Norðurljósanna og hún er þessi:

Frá sólinni berst í sífellu svonefndur sólvindur sem er straumur rafhlaðinna agna. Þegar vindurinn nálgast jörðina hrindir segulsvið jarðarinnar honum frá sér nema í kringum segulpólana. Þar sleppur eitthvað af ögnunum inn í segulsviðið. Þegar eindirnar rekast á lofthjúp jarðar, í um 100-250 km hæð örvast sameindir og frumeindir í hjúpnum og þær senda frá sér sýnilegt ljós sem við köllum norður- eða suðurljós.