Laus störf við GÞ næsta vetur

Laus störf við Grunnskólann á Þórshöfn næsta vetur.

  Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir skapandi og kraftmiklum einstaklingum til starfa. Í boði eru fjölbreytt störf sem henta bæði körlum og konum. Við leitum eftir sjálfstæðum einstaklingum sem hafa áhuga á því að setja mark sitt á skólabraginn, vinna með börnum og fullorðnum og geta unnið sjálfstætt. Lykilorð okkar í GÞ eru vinsemd, virðing, vellíðan og virkni en þessi gildi leggjum við rækt við og leitumst við að uppfylla. Starfsfólk skólans hefur sinnt fjölbreyttu þróunarstarfi á liðnum árum og leggur áherslu á virkni og hlutdeild allra í skólabragnum. Áherslan er í skólastarfinu er á fjölbreytta kennsluhætti, eflingu læsis, félagsfærni (ART) og samvinnu allra í skólanum, jafnt nemenda sem fullorðinna.Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir umsjónarkennara í 1. og 2. árgangi og er hluti af kennsluteymi 1. – 4. árgangs.   Viðkomandi skal hafa kennsluréttindi í grunnskóla. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs.   Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir sérkennara í 40% starf. Viðkomandi skal hafa kennsluréttindi í grunnskóla. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs.