10. bekkur á leið til Lundúna

Á morgun leggur 10. bekkurinn okkar land undir fót. Í för með þeim verða þau Árni Davíð og Hanna María. Ákvörðunarstaður þeirra er Lundúnir hvorki meira né minna! Þau munu þar njóta menningar og sögu þessarar stórkostlegu borgar ásamt því að rölta um Oxfordstræti og versla sér eitthvað fallegt! Við óskum þeim að sjálfsögðu góðrar ferðar og skemmtunar! Vegna þessa má búast við nokkurri röskun á stundaskrá 5. - 9. bekkja en nánar um það síðar!